Terms of service
Velkomin í netverslun Skátabúðarinnar.
Við leggjum áherslu á örugg, einföld og ánægjuleg viðskipti. Viðskiptaskilmálar þessir gilda um kaup á vörum í netverslun Skátabúðarinnar á www.skatabudin.is og www.sigraena.is
Með því að ganga frá pöntun samþykkir kaupandi viðskiptaskilmála þessa, að því marki sem þeir samræmast gildandi lögum. Skilmálarnir takmarka ekki lögbundin réttindi neytenda.
Um neytendakaup gilda meðal annars lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Upplýsingar um seljanda
Skátabúðin ehf
Kennitala: 6105141620
VSK-númer: 117054
Heimilisfang: Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
Sími: 550-9800
Netfang: skatabudin@skatarnir.is
Vefsíður: www.skatabudin.is og www.sigraena.is
Vörur og verð
Öll verð í netverslun Skátabúðarinnar eru birt í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Sendingarkostnaður og annar mögulegur viðbótarkostnaður kemur fram áður en kaupandi staðfestir pöntun.
Skátabúðin leggur áherslu á að upplýsingar um vörur, verð og lagerstöðu séu réttar. Við áskiljum okkur þó rétt til að leiðrétta augljósar villur í verðmerkingum eða vörulýsingum í samræmi við gildandi lög.
Komi upp augljós verðvilla sem hefur áhrif á pöntun verður haft samband við kaupanda eins fljótt og unnt er. Kaupanda verður þá boðið að samþykkja leiðrétt verð eða hætta við kaupin og fá endurgreiðslu.
Pantanir og greiðslur
Kaupandi velur vöru, setur hana í körfu og gengur frá pöntun í greiðsluferli netverslunarinnar.
Áður en pöntun er staðfest getur kaupandi yfirfarið vörur, magn, verð, sendingarkostnað og heildarfjárhæð.
Tekið er við greiðslum með þeim greiðslukortum sem tilgreind eru í greiðsluferli netverslunarinnar.
Kaupandi fær staðfestingu á pöntun og greiðslu í tölvupósti. Í staðfestingunni koma fram nauðsynlegar upplýsingar um kaupin.
Ekki er unnt að ábyrgjast að allar vörur séu til á lager þrátt fyrir að þær birtist í netversluninni.
Ef pöntuð vara reynist uppseld verður haft samband við kaupanda. Honum verður boðin sambærileg vara, ef hún er fáanleg, eða full endurgreiðsla vegna þeirrar vöru sem ekki er hægt að afhenda. Önnur vara verður ekki afhent í stað þeirrar pöntuðu án samþykkis kaupanda.
Afhending og sendingar
Sendingar
Sendingarkostnaður kemur fram áður en kaupandi staðfestir pöntun.
Skátabúðin leitast við að afgreiða pantanir eins fljótt og unnt er. Komi upp tafir á afhendingu verður kaupandi upplýstur.
Sækja pöntun í verslun
Hægt er að sækja pantanir í Hraunbæ 123, 110 Reykjavík á auglýstum opnunartíma. Kaupandi er beðinn um pöntunarstaðfestingu við afhendingu.
Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur neytandi almennt rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga. Fresturinn hefst þegar kaupandi tekur við vörunni.
Til að nýta réttinn skal kaupandi senda Skátabúðinni tölvupóst eða koma í verslun innan 14 daga frá afhendingu vöru. Tilkynningu má senda á skatabudin@skatarnir.is
Vörur sem skilað er skulu vera í upprunalegum umbúðum. Ef vörur eru sendar til baka með pósti skal kaupandi greiða sendingarkostnað. Einnig er hægt að skila vörum í Hraunbæ 123, 110 Reykjavík á auglýstum opnunartíma Skátabúðarinnar/Sígræna.
Undantekningar
Lögbundinn réttur til að falla frá kaupum gildir ekki í öllum tilvikum og sérstaklega ekki ef á við um vörur sem eru sérframleiddar samkvæmt forskrift kaupanda eða bera skýrt persónlegt auðkenni hans eða skátafélags kaupanda.
Endurgreiðslur
Endurgreiðsla fer fram þegar vöru hefur verið skilað. Endurgreiðslur eru framkvæmdar með millifærslu á reikning kaupanda. Kaupandi ber ekki kostnað af endurgreiðslunni.
Gallaðar vörur og kvartanir
Ef um galla sé að ræða er óskað eftir því að kaupandi tilkynni Skátabúðinni gallann innan hæfilegs tíma frá því að hans varð vart. Tilkynning innan tveggja mánaða frá því að gallinn uppgötvaðist telst tímanlegur. Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu en getur verið breytilegur á þeirri vöru sem um ræðir.
Hægt er að senda tölvupóst á skatabudin@skatarnir.is með lýsingu á gallanum, upplýsingum um vöruna og staðfestingu á kaupum. Gott er að láta ljósmyndir fylgja ef þær auðvelda mat á málinu.
Einnig er hægt að koma með vöruna í verslunina að Hraunbæ 123, 110 Reykjavík. Skátabúðin metur gallamálið og upplýsir kaupanda um næstu skref. Ef þörf krefur er leitað sérfræðimats, án þess að það takmarki lögbundinn réttindi kaupanda.
Viðurkenndir gallar reru leystir án kostnaðar fyrir neytanda í samræmi við gildandi lög.
Persónuvernd
Skátabúðin / Sígræna leggur áherslu á að persónuupplýsingar viðskiptavina séu meðhöndlaðar á öruggan og ábyrgan hátt. Við afgreiðslu pantana kann Skátabúðin / Sígræna að vinna með upplýsingar á borð við nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og upplýsingar um kaup.
Persónuupplýsingar eru meðal annars notaðar til að afgreiða pantanir, annast afhendingu, veita þjónustu og uppfylla lagalegar skyldur.
Nauðsynlegum upplýsingum kann að vera miðlað til samstarfsaðila sem koma að greiðslum, sendingum og tæknilegri framkvæmd netverslunarinnar.
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga, varðveislutíma og réttindi einstaklinga koma fram í persónuverndarstefnu Skátabúðarinnar.
Höfundarréttur og vörumerki
Efni á vefsíðum Skátabúðarinnar og Sígræna, þar á meðal texti, myndir, grafík og vörumerki, kann að vera verndað samkvæmt höfundarréttar- og vörumerkjalögum.
Óheimilt er að afrita, endurbirta eða nýta verndað efni í atvinnuskyni án heimildar. Réttindi þriðju aðila, þar á meðal birgja og framleiðanda eru virt.
Ágreiningur og kvartanir
Ef kaupandi er ósáttur við vöru eða afgreiðslu máls hvetjum við hann til að hafa samband við Skátabúðina svo hægt sé að leita lausnar. Hægt er að senda erindi á skatabudin@skatarnir.is
Ef erindið er viðkæmt eða engin svör berast má hafa samband við framkvæmdastjóra ragnar@skatarnir.is .
Ef ágreiningur leysist ekki getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Kærunefnd vöru og þjónustukaupa, Borgartúni 21, 105 Reykjavík má nálgast hér.
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Breytingar á viðskiptaskilmálum
Skátabúðin / Sígræna áskilur sér rétt að uppfæra viðskiptaskilmála sína vegna breytinga á starfsemi eða þjónustu. Sú útgáfa skilmálanna sem gilti við staðfestingu pöntunar gildir um viðkomandi kaup.
Hafa samband
Við viljum að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með vörurnar og þjónustuna.
Ef spurningar vakna um pantanir, vörur, afhendingu eða vöruskil er alltaf velkomið að hafa samband.
Skátabúðin ehf.
Hraunbær 123, 110 Reykjavík
Sími: 550-9800
Netfang: skatabudin@skatarnir.is
Vefsíða: www.skatabudin.is / www.sigraena.is