Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 6

Asivik

Adventure Backpack 65L

Adventure Backpack 65L

Fullt verð 26,990 ISK
Fullt verð Tilboðsverð 26,990 ISK
Tilboð Uppselt
Innifalið vsk.
Magn

Asivik Adventure er sterkur 65 L göngubakpoki fyrir lengri gönguferðir og ferðalög.

Bakpokinn er með stillanlegu burðarkerfi og tveimur álstöngum sem veita góðan stuðning. Mjaðmabelti er bólstrað og axlarólarnar eru úr EVA-froðu, svo þyngdin dreifist vel. 3D netefni hjálpar til við að halda góðu loftflæði. Baklengdin er stillanleg og hentar vel einstaklingum á bilinu 165-185cm.

Aðalhólfið opnast bæði að ofan og að framanverðu, sem auðveldar pökkun og aðgengi. Að innan er hólf fyrir drykkjarkerfi. 

Bakpokinn er með fjölmörgum vösum og festingum fyrir búnað, þar á meðal teygjanlegum hliðarvösum, stórum vasa að framan, vösum á mjaðmabelti og festingum fyrir göngustafi eða ísöxi.

Helstu eiginleikar

  • Rúmmál: 65 L
  • Stillanlegt burðarkerfi
  • Hentar almennt 165–185 cm hæð
  • Tvær álstangir styrkja bakið
  • Bólstrað mjaðmarbelti og axlarólar
  • 3D netefni fyrir aukna loftræstingu
  • Opnast að ofan og með stórum rennilás að framan
  • Hólf fyrir drykkjarkerfi
  • Tveir teygjanlegir hliðarvasar
  • Stór teygjanlegur vasi að framan
  • Vasar á mjaðmarbelti
  • Vasar í og á topploki
  • Festingar fyrir göngustafi og ísöxi
  • Stillanlegt topplok
  • Þyngd: 2.170 g

Efni

  • Aðalefni: 420D nælon, PU 1500
  • PFC-frí vatnsfráhrindandi meðhöndlun
  • Teygjanlegt net: 97% nælon, 3% elastan
  • Netvasar: 100% pólýester

Athugið: Bakpokinn er ekki vatnsheldur. Mælt er með regnhlíf fyrir bakpoka í mikilli rigningu.

Skoða nánari upplýsingar